Ævintýralandið Ítalía: Isola Bella, ein af Borromeo-eyjunum í Lake Maggiore í Liguríu á norðvesturströnd Ítalíu, skammt frá Savona og Genúa. Ljósm. óhk

Mikil aukning í bókunum á sólarlandaferðum vegna slæmrar veðurspár

Eftirspurn eftir utanlandsferðum til sólríkra áfangastaða hefur aukist verulega síðustu daga samhliða úrkomusamri veðurspá fyrir Ísland, einkum vestur,- norðvestur- og suðvestur horn landsins. Samkvæmt upplýsingum frá ferðaskrifstofum hafa bókanir aukist það mikið að bæta hefur þurft við flugferðum til að mæta eftirspurn.