
Gæðingar og góðir knapar á Landsmóti hestamanna
Landsmóti hestamannafélaga lauk á Hólum í Hjaltadal á laugardagskvöldið, en mótið stóð í rétta viku. Landsmót er haldið annað hvert ár og er sem fyrr einstök hátíð þar sem unnendur íslenska hestsins koma saman til að fagna hestinum, ræktuninni, íþróttinni og þeirri menningu sem hefur þróast í kringum íslenska hestinn í gegnum aldir. Á mótið komu þúsundir gesta; áhugafólk víðs vegar að úr heiminum sem skapaði ásamt heimafólki einstaka stemningu þar sem sameiginleg ástríða fyrir íslenska hestinum var í forgrunni. Blaðamaður Skessuhorns heyrði hljóðið í heimafólki sem dvaldi á Hólum yfir mótsdagana. Sagði það almenna ánægju ríkja með mótið. Skipulagning, dagskrá og tímasetningar stóðust með ágætum, vel var hlúð að hliðardagskrá yfir mótsdagana og gat þannig fólk t.d. fylst með spennandi kappleikjum í HM í fótbolta á risaskjá í tjaldi. Í vikunni fengu gestir að prófa allar gerðir af íslensku sumarveðri, eða eins og Skotinn sagði: „Four seasons in one day.“ Þó hékk yfirleitt þurrt meðan dagskrá á keppnisvöllunum stóð yfir. Á nóttunni rigndi hins vegar heil ósköp. Veðurspáin hafði að vísu ekki lofað góðu. Um helgina blés hressilega og segja má að veðrið hafi einkum haft áhrif á heimferð fólks en ófært var fyrir stóra ferðavagna og hestakerrur yfir Holtavörðuheiði á sunnudaginn.