
Akraneskaupstaður gagnrýnir skerðingu á almenningssamgöngum
Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar lýsir yfir áhyggjum af fyrirhugaðri skerðingu á þjónustu landsbyggðarvagna til og frá Akranesi. Málið var tekið fyrir á fundi ráðsins mánudaginn 6. júlí í kjölfar tilkynningar frá Vegagerðinni um væntanlegar breytingar á þjónustunni. Í bókun ráðsins er bent á að fjölmargir Akurnesingar treysti daglega á almenningssamgöngur til að sækja vinnu og nám á höfuðborgarsvæðinu. Ráðið telur því að fækkun ferða geti haft veruleg áhrif á samgöngumöguleika íbúa.