Þannig var aðkoman þegar sjálfboðaliðar ungmennafélagsins mættu til að opna í gær. Ljósm. Umf. Íslendingur

Töluverðar skemmdir unnir á laugarhúsi Hreppslaugar

Lögreglan á Vesturlandi hefur nú til rannsóknar innbrot sem framið var í laugarhúsið við Hreppslaug í Skorradal í fyrrinótt. Töluverðar skemmdir voru unnar á hurð og dyrabúnaði og þá var sjóðsvél stolið og fleiri smærri hlutum. Ungmennafélagið Íslendingu á og rekur Hreppslaug og reka ungmennafélagar laugina í sjálfboðavinnu. Laugin sjálf er friðuð en laugarhúsið er nýlegt. Kristján Guðmundsson, formaður Umf. Íslendings, kveðst að vonum sleginn yfir innbrotinu og ekki síst þeim skemmdum sem þjófurinn vann. Bindur hann vonir við að lögregla nái að upplýsa málið en öryggismyndavélar eru við laugina. Náðust myndir af bíl þjófsins og af viðkomandi athafna sig við laugarhúsið.

Þrátt fyrir skemmdirnar var strax gerð bráðabirgða viðgerð á dyrabúnaði þannig að hægt er að hafa opið í laugina. Hreppslaug er opin alla daga vikunnar í sumar, utan mánudaga, frá klukkan 13:00–22:00.

Hreppslaug er opin alla daga vikunnar, utan mánudaga, frá klukkan 13-22