Fréttir

true

Fjölmargir sektaðir

Í liðinni viku voru 92 ökumenn stöðvaðir af Lögreglunni á Vesturlandi og kærðir fyrir of hraðan akstur. Að auki voru 952 ökumenn myndaðir af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Einn ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sá hafði einnig fíkniefni meðferðis og var sviptur ökuréttindum. Tveir ökumenn voru kærðir fyrir…Lesa meira

true

Innviðafélagið fær nafnið Göng og brú ohf.

Í samræmi við lög um innviðafélag, sem samþykkt voru á Alþingi 18. júní síðastliðinn, hefur fjármála- og efnahagsráðherra komið á fót hlutafélagi um fjármögnun og uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja. Félagið hefur hlotið nafnið Göng og brú ohf. „Markmið þess er að flýta fyrir þjóðhagslega mikilvægum samgönguframkvæmdum, skapa farveg fyrir stöðuga fjármögnun slíkra verkefna og tryggja hagkvæma,…Lesa meira

true

Bæjarhátíðin Heim í Búðardal um helgina

Heim í Búðardal verður haldin dagana 3.-5. júlí nk. Dagskrá hátíðarinnar er í senn fjölbreytt, menningarleg og skemmtileg. Hátíðin er jafnan vel sótt af heimamönnum og gestum þeirra, þar á meðal brottfluttum Dalamönnum. Áherslan er lögð á fjölskylduvæna og heimatilbúna dagskrá og viðburði, bærinn er skreyttur hátt og lágt og íbúar og fyrirtæki hafa opið…Lesa meira

true

Íbúafundur um rannsóknarborun á Grundartanga

Opinn íbúafundur um fyrirhugaða rannsóknarborun við Grundartangaveg verður haldinn í félagsheimilinu Miðgarði í Hvalfjarðarsveit á morgun, fimmtudaginn 2. júlí klukkan 16. Þar gefst íbúum kostur á að kynna sér verkefnið, spyrja spurninga og taka þátt í umræðum um framkvæmdina. Að fundinum standa Elkem, Þróunarfélag Grundartanga og Carbfix. Rannsóknarborunin er hluti af undirbúningi fyrir frekari uppbyggingu…Lesa meira

true

Kosið var í nýja stjórn á aukaaðalfundi SSV

Í dag fór fram aukaaðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi á Hótel Hamri í Borgarnesi. Á fundinum voru rædd nokkur mál, starf SSV kynnt auk þess sem kjósa þurfti nýja stjórn samtakanna í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna í vor. Formaður stjórnar var kjörinn Ragnar B. Sæmundsson á Akranesi en hann hefur gegnt því embætti undanfarið ár. Auk Ragnars…Lesa meira

true

Fundu draumalífið í Hvalfirði

Listahjón og hugmyndasmiðir flytja af mölinni í sveitasæluna Fyrir tæpu ári ákváðu listahjónin Matthías Tryggvi Haraldsson og Brynhildur Karlsdóttir að yfirgefa ys og þys höfuðborgarinnar og flytja ásamt dætrum sínum tveimur í Hvalfjarðarsveit. Þar hafa þau fundið kyrrðina sem þau leituðu að, byggt sér nýtt heimili og skapað umhverfi sem þau telja henta bæði fjölskyldulífinu…Lesa meira

true

Landhelgisgæsla Íslands í hundrað ár

Landhelgisgæsla Íslands er 100 ára í dag, 1. júlí. Stofnun Landhelgisgæslunnar má rekja til þess þegar björgunarskipið Þór var keypt til landsins fyrir tilstuðlan stórhuga frumkvöðla í Björgunarfélagi Vestmannaeyja. 1. júlí árið 1926 eignaðist Ríkissjóður skipið og við þann dag hefur stofndagur Landhelgisgæslunnar verið miðaður. Skömmu áður kom til landsins fyrsta varðskipið sem smíðað var…Lesa meira

true

Frumsýna á laugardaginn nýtt kynningarefni um Dalina

Dalabyggð og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi bjóða íbúum Dalabyggðar og öðrum gestum til frumsýningar á nýju kynningarefni um Dalina. Fyrirtækið Broadstone sá um myndatökur og sett hafa verið saman kynningarmyndbönd þar sem varpað er ljósi á mannlífið, tækifærin, fallega náttúru og almenn lífsgæði í Dalabyggð. Frumsýningin verður haldin í félagsheimilinu Dalabúð laugardaginn 4. júlí klukkan…Lesa meira

true

Það er alltaf gaman þegar eftir vinnunni er tekið

Jónas Kári Eiríksson, framkvæmdastjóri vörustýringar hjá Öskju, er á meðal 20 vonarstjarna í íslensku viðskiptalífi Jónas Kári Eiríksson, framkvæmdastjóri vörustýringar hjá Öskju, er einn þeirra tuttugu einstaklinga sem ráðgjafafyrirtækið Góð samskipti valdi nýverið á lista yfir vonarstjörnur í íslensku viðskiptalífi árið 2026. Á listanum eru efnilegir stjórnendur sem taldir eru líklegir til að skipa sér…Lesa meira

true

Gríðarlegt magn fíkniefna haldlagt af lögreglu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú tvö umfangsmikil fíkniefnamál, en í þeim var lagt hald á samtals 175 kíló af fíkniefnum. Tíu sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við málin; þrír Íslendingar og sjö erlendir ríkisborgarar, en málin er þó óskyld. Í öðru þeirra var lagt hald á 106 kg af kókaíni, en aldrei áður hefur svo…Lesa meira