
Íbúafundur um rannsóknarborun á Grundartanga
Opinn íbúafundur um fyrirhugaða rannsóknarborun við Grundartangaveg verður haldinn í félagsheimilinu Miðgarði í Hvalfjarðarsveit á morgun, fimmtudaginn 2. júlí klukkan 16. Þar gefst íbúum kostur á að kynna sér verkefnið, spyrja spurninga og taka þátt í umræðum um framkvæmdina. Að fundinum standa Elkem, Þróunarfélag Grundartanga og Carbfix. Rannsóknarborunin er hluti af undirbúningi fyrir frekari uppbyggingu og þróun iðngarðsins á Grundartanga. Tilgangurinn er að afla upplýsinga um eiginleika berggrunnsins, meðal annars gegndræpi, sprungukerfi og flæðiskilyrði neðanjarðar, auk þess að kanna grunnvatn á svæðinu.
Skipuleggjendur leggja sérstaka áherslu á að rannsóknin feli ekki í sér niðurdælingu koldíoxíðs heldur sé eingöngu um rannsóknarborun að ræða. Á fundinum verður jafnframt kynnt framtíðarsýn fyrir Grundartangasvæðið og fulltrúar samstarfsaðilanna fara yfir framkvæmd borunarinnar og svara fyrirspurnum fundargesta. Fundarstjóri verður Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar.
Húsið opnar klukkan 16 og boðið verður upp á kaffi og meðlæti. Formleg dagskrá hefst klukkan 16:15 með kynningu á framtíðarsýn fyrir svæðið, klukkan 16:30 tekur við kynning Carbfix á rannsóknarboruninni og klukkan 17 hefjast almennar umræður. Skipuleggjendur hvetja íbúa og aðra áhugasama til að mæta og kynna sér verkefnið frá fyrstu hendi.