
Frumsýna á laugardaginn nýtt kynningarefni um Dalina
Dalabyggð og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi bjóða íbúum Dalabyggðar og öðrum gestum til frumsýningar á nýju kynningarefni um Dalina. Fyrirtækið Broadstone sá um myndatökur og sett hafa verið saman kynningarmyndbönd þar sem varpað er ljósi á mannlífið, tækifærin, fallega náttúru og almenn lífsgæði í Dalabyggð. Frumsýningin verður haldin í félagsheimilinu Dalabúð laugardaginn 4. júlí klukkan 14 þar sem verður sannkölluð bíóstemning! Boðið verður upp á popp og kók á staðnum, allir velkomnir og frítt inn.