Páll S Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV ásamt nýju stjórninni.

Kosið var í nýja stjórn á aukaaðalfundi SSV

Í dag fór fram aukaaðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi á Hótel Hamri í Borgarnesi. Á fundinum voru rædd nokkur mál, starf SSV kynnt auk þess sem kjósa þurfti nýja stjórn samtakanna í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna í vor. Formaður stjórnar var kjörinn Ragnar B. Sæmundsson á Akranesi en hann hefur gegnt því embætti undanfarið ár. Auk Ragnars verða í stjórn: Sigurbjörg Ottesen frá Eyja- og Miklaholtshreppi, Björn Ásgeir Sumarliðason frá Sveitarfélaginu Stykkishólmi, Sigurður Guðmundsson frá Borgarbyggð, Júníana Björg Óttarsdóttir frá Snæfellsbæ, Fannar Þór Þorfinnsson frá Grundarfjarðarbæ, Hrafn Ágúst Björnsson frá Akraneskaupstað, Haukur Þór Hauksson frá Borgarbyggð og Guðrún Sigríður Gísladóttir frá Hvalfjarðarsveit.