Kókaínið sem haldlagt var í Straumsvík í Hafnarfirði fannst í sjókistu undir skipinu Koznitza. Skipið flutti súrál til álverksmiðjunnar en það siglir undir maltneskum fána.

Gríðarlegt magn fíkniefna haldlagt af lögreglu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú tvö umfangsmikil fíkniefnamál, en í þeim var lagt hald á samtals 175 kíló af fíkniefnum. Tíu sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við málin; þrír Íslendingar og sjö erlendir ríkisborgarar, en málin er þó óskyld. Í öðru þeirra var lagt hald á 106 kg af kókaíni, en aldrei áður hefur svo mikið magn af kókaíni verið haldlagt í einni sendingu. Í hinu málinu var lagt hald á 56 kg af amfetamíni, auk annarra fíkniefna, en aldrei áður hefur svo mikið magn af amfetamíni verið haldlagt í einni sendingu.