
Svipmynd frá hátíðinni 2020.
Bæjarhátíðin Heim í Búðardal um helgina
Heim í Búðardal verður haldin dagana 3.-5. júlí nk. Dagskrá hátíðarinnar er í senn fjölbreytt, menningarleg og skemmtileg. Hátíðin er jafnan vel sótt af heimamönnum og gestum þeirra, þar á meðal brottfluttum Dalamönnum. Áherslan er lögð á fjölskylduvæna og heimatilbúna dagskrá og viðburði, bærinn er skreyttur hátt og lágt og íbúar og fyrirtæki hafa opið fyrir gesti og gangandi. Dalamenn skemmta sér við leiki og með þátttöku í ýmsum dagskrárliðum.