Innviðafélagið fær nafnið Göng og brú ohf.

Í samræmi við lög um innviðafélag, sem samþykkt voru á Alþingi 18. júní síðastliðinn, hefur fjármála- og efnahagsráðherra komið á fót hlutafélagi um fjármögnun og uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja. Félagið hefur hlotið nafnið Göng og brú ohf. „Markmið þess er að flýta fyrir þjóðhagslega mikilvægum samgönguframkvæmdum, skapa farveg fyrir stöðuga fjármögnun slíkra verkefna og tryggja hagkvæma, faglega og skilvirka verkefnastjórn við undirbúning og framkvæmd þeirra,“ segir í tilkynningu.

Innviðafélagið fær nafnið Göng og brú ohf. - Skessuhorn