
Landhelgisgæsla Íslands í hundrað ár
Landhelgisgæsla Íslands er 100 ára í dag, 1. júlí. Stofnun Landhelgisgæslunnar má rekja til þess þegar björgunarskipið Þór var keypt til landsins fyrir tilstuðlan stórhuga frumkvöðla í Björgunarfélagi Vestmannaeyja. 1. júlí árið 1926 eignaðist Ríkissjóður skipið og við þann dag hefur stofndagur Landhelgisgæslunnar verið miðaður. Skömmu áður kom til landsins fyrsta varðskipið sem smíðað var fyrir Íslendinga. Það var gufuskipið Óðinn, 512 brúttólesta skip, vopnað tveimur 57 mm fallbyssum.