Fréttir

true

Ný lög skerpa á réttindavernd fatlaðs fólks

Alþingi hefur samþykkt lög um réttindavernd fatlaðs fólks. Um ný heildarlög er að ræða sem leysa af hólmi lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk. „Meginmarkmið nýju laganna er að tryggja fötluðu fólki viðeigandi stuðning við vernd hvers konar réttinda og stuðla að bættu jafnrétti og aðgengi í þjónustu við fatlað fólk. Jafnframt er áhersla lögð á…Lesa meira

true

Fengu viðurkenningu fyrir íslenskunám í gegnum Bara tala

Í síðustu viku fór fram hjá Akraneskaupstað athöfn þar sem níu erlendir starfsmenn bæjarfélagsins fengu viðurkenningu fyrir frábæran árangur í íslenskunámi sem þeir stunduðu í gegnum stafrænu íslenskukennslulausnina Bara tala. Akraneskaupstaður var á meðal fyrstu sveitarfélaga landsins til að innleiða lausnina, en síðan hafa 20 önnur sveitarfélög fylgt í fótsporið og tekið appið í notkun…Lesa meira

true

Strangari reglur um vindorku samþykktar á Alþingi

Frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um takmörkun vindorkunýtingar og styrkingu verndarflokks rammaáætlunar, var samþykkt á Alþingi á lokadegi þinghalds. „Með lögunum eru í fyrsta sinn settar heildstæðar reglur um vindorkunýtingu á Íslandi í þeim tilgangi að stuðla að umhverfisvernd, hlusta á vilja nærsamfélagsins og tryggja hagkvæma uppbyggingu raforkuflutningskerfisins,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.Í frumvarpinu felst…Lesa meira

true

Þokan hamlaði sýn til átta sýslna

Lognið var aðeins að flýta sér í Hnappadalnum í gærmorgun þegar nítján fjallagarpar úr Ferðafélagi Borgarfjarðar héldu í göngu var frá Hallkelsstaðahlíð upp Fossabrekkur og áfram á Geirhnúk. Á hnúkinum var þokan aðeins að stríða göngugörpum svo þeir þurftu ekki að huga að útsýninu til átta sýslna. Guðmundur Rúnar Svansson fararstjóri frá Dalsmynni lét þokuna…Lesa meira

true

Í fyrsta sinn sem heimamaður sigrar í Snæfellsjökulshlaupinu

Á laugardaginn var fjórtánda Snæfellsjökulshlaupið. Alls voru hlauparar 165 að þessu sinni. Hlaupið var frá Arnarstapa yfir Jökulháls og til Ólafsvíkur. Hlaupaleiðin er um 22 kílómetrar. Á leiðinni getur verið erfið færð þar sem snjór og krapi eru á leiðinni. Heimamaðurinn Brynjar Vilhjálmsson kom fyrstur í mark og var hann jafnframt fyrsti heimamaðurinn til að…Lesa meira

true

Kristín setti heimsmet í samanlögðu og í réttstöðulyftu

Kristín Þórhallsdóttir kraftlyftingakona frá Laugalandi í Borgarfirði setti í gær heimsmet í samanlögðu og í réttstöðulyftu á heimsmeistaramótinu í klassískum lyftingum sem fram fór í Druskininkai í Litáen. Kristín keppti í -84 kílóa flokki í M1-öldungaflokki. Auk fyrrgreindra sigra hlaut hún bronsverðlaun í hnébeygju og hafnaði í 6. sæti í -84 af 22 keppendum. Mjótt…Lesa meira

true

Alltaf gaman að opna Langá

„Já, við erum að opna Langá á Mýrum í góðra vina hópi eins og síðustu ár. Við höfum fengið töku hérna neðarlega í ánni en ekkert meira,“ sagði Jógvan Hansen við Langá en áin var opnuð í gærmorgun eins og venja er til. „Mér líst alltaf vel á sumarið og ætla að veiða töluvert í…Lesa meira

true

Meira en fimmti hver landsmaður er erlendur

Alls voru 84.789 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi 1. júní síðastliðinn og fjölgaði þeim um 850 einstaklinga, eða um 1% frá 1. desember 2025. Mest fjölgun hefur verið á ríkisborgurum frá Rúmeníu, þeim hefur fjölgað um 249 einstaklinga frá 1. desember sl. Þar á eftir koma ríkisborgarar frá Úkraínu og loks Spáni.…Lesa meira

true

Nýstúdent frá MB bar blómsveig að minnisvarða um Jón Sigurðsson

Eyrún Freyja Andradóttir, nýstúdent frá Menntaskóla Borgarfjarðar, varð þess heiðurs aðnjótandi að taka þátt í hátíðarhöldunum á Austurvelli í Reykjavík í tilefni af 82 ára afmæli lýðveldisins. Með henni í athöfninni var Daniel do Carmo Njarðarson, nýstúdent frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Sú hefð hefur skapast að tveir nýstúdentar frá sitthvorum skólanum eru valdir ár hvert…Lesa meira

true

Strandveiðikvótinn aukinn um 2700 tonn

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur aukið aflaheimildir til strandveiða á yfirstandandi strandveiðitímabili. Það gerði ráðherra í gær með því að undirrita breytingu á reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla (nr. 1270/2025). Með reglugerðinni er aflamark þorsks til strandveiða hækkað um 2.700 tonn á tímabilinu eða úr 10.650 tonnum í 13.350 tonn. Með þessari…Lesa meira