Fimm af þeim sem fengu viðurkenningu ásamt Jóni Gunnari Þórðarsyni framkvæmdastjóra Bara tala. Ljósm. mm

Fengu viðurkenningu fyrir íslenskunám í gegnum Bara tala

Í síðustu viku fór fram hjá Akraneskaupstað athöfn þar sem níu erlendir starfsmenn bæjarfélagsins fengu viðurkenningu fyrir frábæran árangur í íslenskunámi sem þeir stunduðu í gegnum stafrænu íslenskukennslulausnina Bara tala. Akraneskaupstaður var á meðal fyrstu sveitarfélaga landsins til að innleiða lausnina, en síðan hafa 20 önnur sveitarfélög fylgt í fótsporið og tekið appið í notkun fyrir sitt starfsfólk.