Nýstúdent frá MB bar blómsveig að minnisvarða um Jón Sigurðsson

Eyrún Freyja Andradóttir, nýstúdent frá Menntaskóla Borgarfjarðar, varð þess heiðurs aðnjótandi að taka þátt í hátíðarhöldunum á Austurvelli í Reykjavík í tilefni af 82 ára afmæli lýðveldisins. Með henni í athöfninni var Daniel do Carmo Njarðarson, nýstúdent frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla.