Strangari reglur um vindorku samþykktar á Alþingi

Frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um takmörkun vindorkunýtingar og styrkingu verndarflokks rammaáætlunar, var samþykkt á Alþingi á lokadegi þinghalds. „Með lögunum eru í fyrsta sinn settar heildstæðar reglur um vindorkunýtingu á Íslandi í þeim tilgangi að stuðla að umhverfisvernd, hlusta á vilja nærsamfélagsins og tryggja hagkvæma uppbyggingu raforkuflutningskerfisins,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Í frumvarpinu felst m.a. að vindorkunýting verður útilokuð á svæðum sem hafa verið friðlýst eða njóta sérstakrar verndar, svo sem á Ramsar-svæðum, svæðum á heimsminjaskrá UNESCO og B-hluta náttúruminjaskrár. Fallið er frá hugmyndum fyrri ára um flýtimeðferð vindorkugarða fram hjá rammaáætlun. Í staðinn er vindorkan felld kyrfilega undir rammaáætlunarferlið. Afstaða sveitarfélaga verður grundvallarbreyta við mat verkefnisstjórnar rammaáætlunar á vindorkukostum. Horft verður sérstaklega til áhrifa á fuglalíf og óbyggð víðerni, en jafnframt hvort vindorkukostur sé til þess fallinn að styðja við atvinnu- og byggðaþróun á viðkvæmum svæðum og uppbyggingu raforkuflutningskerfisins. Nú hefur beislun vindorku verið sniðinn þrengri stakkur en áður, raunar svo þröngur að ekki verði endilega unnt að reka vindorkuver nema samhliða annars konar orkuframleiðslu. Það helgast af því að vindorka verður ekki beisluð í logni og því er orka frá vindorkuverum óstöðug.