
Ný lög skerpa á réttindavernd fatlaðs fólks
Alþingi hefur samþykkt lög um réttindavernd fatlaðs fólks. Um ný heildarlög er að ræða sem leysa af hólmi lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk. „Meginmarkmið nýju laganna er að tryggja fötluðu fólki viðeigandi stuðning við vernd hvers konar réttinda og stuðla að bættu jafnrétti og aðgengi í þjónustu við fatlað fólk. Jafnframt er áhersla lögð á að tryggja að sjálfsákvörðunarréttur fatlaðs fólks sé virtur og fyllsta réttaröryggis gætt þegar brýna nauðsyn ber til að grípa inn í líf þess. Við gerð frumvarpsins var tekið mið af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Lögunum er ætlað að skerpa á hlutverki réttindagæslu fyrir fatlað fólk og tryggja skýrari verkaskiptingu á milli sýslumanna og réttindagæslu svo ljóst sé til hvers ætlast sé af þeim,“ segir í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu.
Lögunum er einnig ætlað að bregðast við kerfislægum hindrunum sem ákveðinn hópur fatlaðs fólks hefur mætt við aðgang að fjármálum sínum, einkum þeirra sem búa í búsetukjörnum og geta ekki notað rafræn skilríki. Þá er lögunum ætlað að auka skilvirkni í málsmeðferð og ákvarðanatöku í málum sem varða nauðung í þjónustu við fatlað fólk, einfalda ferla, minnka biðtíma eftir ákvörðun, auðvelda eftirlit og tryggja að mál séu áfram afgreidd á samræmdan hátt.