Bræðurnir Gunnlaugur og Víðir Pálmasynir, strandveiðisjómenn á Akranesi, á fyrsta degi strandveiðanna í byrjun maí. Ljósm. óhk

Strandveiðikvótinn aukinn um 2700 tonn

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur aukið aflaheimildir til strandveiða á yfirstandandi strandveiðitímabili. Það gerði ráðherra í gær með því að undirrita breytingu á reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla (nr. 1270/2025). Með reglugerðinni er aflamark þorsks til strandveiða hækkað um 2.700 tonn á tímabilinu eða úr 10.650 tonnum í 13.350 tonn. Með þessari aukningu nemur heildarafli sem úthlutað verður til strandveiða upp úr sjó 14.700 tonnum.