Komið að tindinum. Ljósmyndir: Ferðafélag Borgarfjarðar

Þokan hamlaði sýn til átta sýslna

Lognið var aðeins að flýta sér í Hnappadalnum í gærmorgun þegar nítján fjallagarpar úr Ferðafélagi Borgarfjarðar héldu í göngu var frá Hallkelsstaðahlíð upp Fossabrekkur og áfram á Geirhnúk. Á hnúkinum var þokan aðeins að stríða göngugörpum svo þeir þurftu ekki að huga að útsýninu til átta sýslna. Guðmundur Rúnar Svansson fararstjóri frá Dalsmynni lét þokuna ekki stöðva för. „Það var svo ljúft að koma í Djúpadalinn og rölta gegnum mögnuðu Nautaskörðin. Þegar við nálguðumst Hallkelsstaðahlíð aftur hreinsaði tindurinn sig svo við gátum sagt; „sjáið tindinn, þarna var ég!“ Í reiðhöllinni beið svo Sigrún Ólafsdóttir bóndi í Hallkelsstaðahlíð ferðalanga með dýrindis veitingar.