Hér eru 225 kíló að fara upp. Ljósm. Kraftlyftingasamband Íslands / Hinrik Pálsson

Kristín setti heimsmet í samanlögðu og í réttstöðulyftu

Kristín Þórhallsdóttir kraftlyftingakona frá Laugalandi í Borgarfirði setti í gær heimsmet í samanlögðu og í réttstöðulyftu á heimsmeistaramótinu í klassískum lyftingum sem fram fór í Druskininkai í Litáen. Kristín keppti í -84 kílóa flokki í M1-öldungaflokki. Auk fyrrgreindra sigra hlaut hún bronsverðlaun í hnébeygju og hafnaði í 6. sæti í -84 af 22 keppendum. Mjótt var á munum allt frá þriðja og niður í tíunda sæti í flokknum þar sem hin breska Ziana Azariah bar sigur úr býtum en Karlina Tongotea frá Nýja-Sjálandi hafnaði í öðru sæti. Í samanlögðu lyfti Kristín 575 kílóum sem er einungis fimm kílóum undir hennar besta árangri.