Lagt af stað frá Arnarstapa. Texti og myndir: AF

Í fyrsta sinn sem heimamaður sigrar í Snæfellsjökulshlaupinu

Á laugardaginn var fjórtánda Snæfellsjökulshlaupið. Alls voru hlauparar 165 að þessu sinni. Hlaupið var frá Arnarstapa yfir Jökulháls og til Ólafsvíkur. Hlaupaleiðin er um 22 kílómetrar. Á leiðinni getur verið erfið færð þar sem snjór og krapi eru á leiðinni. Heimamaðurinn Brynjar Vilhjálmsson kom fyrstur í mark og var hann jafnframt fyrsti heimamaðurinn til að vinna í keppninni, en hann gerði sér lítið fyrir og hljóp frá Ólafsvík ásamt öðrum keppanda að Arnarstapa og svo frá Arnarstapa og aftur til baka og fór létt með það.