Jógvan Hansen við Langá snemma á föstudagsmorgun, klár í veiðiskapinn. Ljósm. gb

Alltaf gaman að opna Langá

„Já, við erum að opna Langá á Mýrum í góðra vina hópi eins og síðustu ár. Við höfum fengið töku hérna neðarlega í ánni en ekkert meira,“ sagði Jógvan Hansen við Langá en áin var opnuð í gærmorgun eins og venja er til. „Mér líst alltaf vel á sumarið og ætla að veiða töluvert í Langá og Veiðivötnum einnig. Langá hefur oft gefið okkur vel í byrjun en það mættu vera fleiri laxar gengnir en þetta kemur vonandi í næsta straumi,“ sagði Jógvan og hélt áfram að kasta flugunni.