Fréttir

true

Sveitarfélögin við Breiðafjörð mótmæla harðlega

Sveitarfélagið Stykkishólmur, Vesturbyggð og Reykhólahreppur hafa sent frá sér sameiginlega ályktun þar sem mótmælt er harðlega ákvörðun Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra um að færa Breiðafjarðarferjuna Baldur úr siglingum á Breiðafirði til að sinna auknu álagi við farþega- og ökutækjaflutninga til Vestmannaeyja frá og með mánudeginum 8. júní. Í ályktuninni harma sveitarfélögin og mótmæla harðlega þeirri ákvörðun…Lesa meira

true

Ég held ég hafi verið þokkalega duglegur

Rætt við Jóhann Lundberg Steinsson sjómann og vélstjóra í Ólafsvík Það er erfitt að sitja lengi með Jóhanni Lundberg Steinssyni án þess að brosa og skella upp úr. Hann tekur á móti blaðamanni Skessuhorns með bros á vör, segir elsku drengurinn og þó að blaðamaður hafi einhverja reynslu til sjós þarf hann að hafa sig…Lesa meira

true

Kátir krakkar frá Kátadal komu færandi hendi

Á dögunum komu krakkarnir í Kátadal í Búðardal færandi hendi í íþróttamiðstöðina og afhentu glæsilegt listaverk sem þau höfðu unnið saman að á umliðnum vetri. Verkið er sumarlegt og birta yfir því, sem vonandi gefur fyrirheit um gott sumar á landinu.  „Verkið er afrakstur góðrar samvinnu og sköpunargleði barnanna,“ segir í tilkynningu frá Dalabyggð. Verkið…Lesa meira

true

Það þarf engin segl hjá okkur – við erum seglin

Einar Jóhann Lárusson skipstjóri og frændi hans Hjalti Jón Helgason voru staddir á bryggjunni í Stykkishólmi þegar blaðamaður Skessuhorns leit þar við á ferð sinni nýverið í björtu og fallegu maíveðri. Þeir félagar gera á grásleppu út bátinn Kviku SH 292. Eruð þið að landa, spyr blaðamaður. „Nei, nei við erum að gera klárt fyrir…Lesa meira

true

Gæðingamót Snæfellings var haldið í Stykkishólmi

Gæðingamót hestamannafélagsins Snæfellings fór fram við góðar aðstæður í Stykkishólmi. Þrátt fyrir að þátttaka keppenda hafi verið nokkuð minni en vonir stóðu til, bauð mótið upp á vandaða keppni og margar glæsilegar sýningar. Keppt var í gæðingaflokkum, gæðingatölti og 100 metra flugskeiði þar sem bæði reyndir knapar og efnilegt ungt hestafólk lét ljós sitt skína.…Lesa meira

true

Alin upp á sjávarbakka

Rætt við athafnakonuna Svanborgu Siggeirsdóttur í Stykkishólmi Stykkishólmur skartaði sínu fegursta þegar blaðamaður Skessuhorns gerði sér ferð þangað fyrir nokkru til að ræða við athafnakonuna Svanborgu Siggeirsdóttur. Svanborg býr á fallegum stað í bænum, í reisulegu húsi sem hún keypti hálfklárað ásamt Pétri Ágústssyni manni sínum á sínum tíma. Þau giftu sig árið 1970 og…Lesa meira

true

Búvörusamningar framlengdir um eitt ár

Tekist hefur samkomulag um að framlengja gildandi samninga um starfsskilyrði garðyrkju, nautgriparæktar, sauðfjárræktar og almenn starfsskilyrði landbúnaðarins (búvörusamninga) um eitt ár. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra, Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra og Trausti Hjálmarsson formaður Bændasamtaka Íslands undirrituðu samkomulag þess efnis. Samningarnir hefðu að óbreyttu runnið út í lok þessa árs en nú hefur verið…Lesa meira

true

Auglýst eftir atriðum fyrir barnamenningarhátíð í haust

Barnó er sameiginleg barnamenningarhátíð Vesturlands sem haldin verður næst í október á þessu ári. Þar fá börn og ungmenni að njóta, skapa og taka þátt í fjölbreyttu menningarlífi um allt Vesturland. Nú er lýst eftir spennandi atriðum, viðburðum og skapandi verkefnum fyrir börn og ungmenni á aldrinum 0–18 ára. „Við hvetjum einstaklinga, listafólk, hópa, félagasamtök,…Lesa meira

true

Fjórir laxar komu á land við opnun Norðurár

Veiði hófst í Norðurá í Borgarfirði í morgun. Líkt og síðustu fjögur ár er fjölmiðlafólki ekki lengur hleypt að bökkum árinnar af þessu tilefni, til að fanga stemninguna þegar fyrstu laxar sumarsins eru veiddir. Það er augljós afturför frá fyrri tíð þegar blaðamenn voru boðnir velkomnir í morgunsárið til að færa jákvæðar fréttir af árbakkanum…Lesa meira

true

Skapandi greinar kröftugar á Vesturlandi

Ný Glefsa, vefrit Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, er komin út. Þar er fjallað um könnun meðal fyrirtækja, en sambærilegar kannanir hafa verið gerðar á Vesturlandi frá 2010. Spurt er um ýmislegt. Meðal annars út í fyrirhuguð áform um ráðningar starfsfólks. Í úrvinnslu könnunarinnar er Vesturland marktækt lægra en höfuðborgarsvæðið hvað ráðningaráform snertir. Fyrirtæki á Vesturlandi…Lesa meira