Trausti Hjálmarsson formaður BÍ og Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Ljósm. Stjórnarráðið

Búvörusamningar framlengdir um eitt ár

Tekist hefur samkomulag um að framlengja gildandi samninga um starfsskilyrði garðyrkju, nautgriparæktar, sauðfjárræktar og almenn starfsskilyrði landbúnaðarins (búvörusamninga) um eitt ár. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra, Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra og Trausti Hjálmarsson formaður Bændasamtaka Íslands undirrituðu samkomulag þess efnis.