Frá vinstri: Hrefna Rós Lárusdóttir á Sjarma frá Ólafsvík sem fékk titilinn hestur mótsins, Jón Bjarni Þorvarðarson á Mær frá Bergi sem hlutu titlana hryssa mótsins og knapi mótsins og Sól Jónsdóttir sem fékk titilinn efnilegasti knapinn. Ljósm. ghp

Gæðingamót Snæfellings var haldið í Stykkishólmi

Gæðingamót hestamannafélagsins Snæfellings fór fram við góðar aðstæður í Stykkishólmi. Þrátt fyrir að þátttaka keppenda hafi verið nokkuð minni en vonir stóðu til, bauð mótið upp á vandaða keppni og margar glæsilegar sýningar. Keppt var í gæðingaflokkum, gæðingatölti og 100 metra flugskeiði þar sem bæði reyndir knapar og efnilegt ungt hestafólk lét ljós sitt skína.

Í lok móts völdu dómarar sérstaka heiðurshafa. Sjarmur frá Ólafsvík var valinn hestur mótsins og Mær frá Bergi hryssa mótsins. Jón Bjarni Þorvarðarson hlaut titilinn knapi mótsins og Sól Jónsdóttir var valin efnilegast knapinn. Mótið tókst vel og staðfesti enn á ný þann mikla áhuga og öfluga hestamennsku sem einkenna hestafólk á Snæfellsnesi.

Helstu úrslit voru þessi:

A flokkur

Nr. 1 – Hlýri frá Bergi og Jón Bjarni Þorvarðarson 8,69

Nr. 2 – Sjarmur frá Ólafsvík og Hrefna Rós Lárusdóttir 8,60

Nr. 3 – Tign frá Hrauni og Guðný Margrét Siguroddsdóttir 8,50

Nr. 4 – Skuggi frá Hríshóli 1 og Lárus Ástmar Hannesson 8,44

B flokkur

Nr. 1 – Mær frá Bergi og Jón Bjarni Þorvarðarson 8.60

Nr. 2 – Vænting frá Hrísdal og Guðný Margrét Siguroddsdóttir 8.56

Nr. 3 – Friðrik frá Stykkishólmi og Lárus Ástmar Hannesson 8.23

Nr. 4 – Kiljan frá Hofsstöðum og Greta Röthemeyer 8.21

C1 flokkur

Nr. 1 – Vindur frá Grundarfirði og Sveinn Bárðarson 8.15

Nr. 2 – Kvistur frá Blönduhlíð og Kim Deirdre Denner 8.05

Nr. 3 – Roði frá Háa-Rima 1 og Margrét Þóra Sigurðardóttir 8.01

B flokkur ungmenna

Nr. 1 – Glettir frá Hólshúsum og Hera Guðrún Ragnarsdóttir 8.30

Nr. 2 – Sæla frá Reykhólum og Christina Fischer 8.22

Unglingaflokkur

Nr. 1 – Sægrímur frá Bergi og Sól Jónsdóttir 8.66

Gæðingatölt opinn flokkur

Nr. 1 – Bragi frá Hrísdal og Ásdís Ólöf Sigurðardóttir 8,55

Nr. 2 - Reykur frá Brennistöðum og Guðný Margrét Siguroddsdóttir 8.43

Nr. 3 – Sónata frá Lyngási og Hrefna Rós Lárusdóttir 8.40

Gæðingatölt 2. flokkur

Nr. 1 – Haukur frá Brekku í Þingi og Kim Deirdre Denner 8.04

Nr. 2 – Prins frá Lyngási og Björn Heiðar Björnsson 7.88

Gæðingatölt unglingaflokkur

Nr. 1 – Ögri frá Bergi og Sól Jónsdóttir 8.27

100m flugskeið

Nr. 1 – Sjarmur frá Ólafsvík og Hrefna Rós Lárusdóttir

Nr. 2 – Skuggi frá Hríshóli 1 og Lárus Ástmar Hannesson.

Fréttina skráði Guðrún Svana Pétursdóttir, nýr fréttaritari Skessuhorns í Stykkishólmi

Frá vinstri: Christina Fischer á Sælu frá Reykhólum og Hera Guðrún Ragnarsdóttir á Gletti frá Hólshúsum

Jón Bjarni Þorvarðarson og Hlýri frá Bergi