
Veitingamaðurinn Nuno Alexandre Bentim Servo með einn af fyrstu löxum í Norðurá á þessu veiðitímabili. Ljósm: er aðsend símamynd
Fjórir laxar komu á land við opnun Norðurár
Veiði hófst í Norðurá í Borgarfirði í morgun. Líkt og síðustu fjögur ár er fjölmiðlafólki ekki lengur hleypt að bökkum árinnar af þessu tilefni, til að fanga stemninguna þegar fyrstu laxar sumarsins eru veiddir. Það er augljós afturför frá fyrri tíð þegar blaðamenn voru boðnir velkomnir í morgunsárið til að færa jákvæðar fréttir af árbakkanum og segja frá hagsmunum veiðiréttareigenda.