
Skapandi greinar kröftugar á Vesturlandi
Ný Glefsa, vefrit Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, er komin út. Þar er fjallað um könnun meðal fyrirtækja, en sambærilegar kannanir hafa verið gerðar á Vesturlandi frá 2010. Spurt er um ýmislegt. Meðal annars út í fyrirhuguð áform um ráðningar starfsfólks. Í úrvinnslu könnunarinnar er Vesturland marktækt lægra en höfuðborgarsvæðið hvað ráðningaráform snertir. Fyrirtæki á Vesturlandi voru 27% ólíklegri en fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu til að ráða fleira starfsfólk. Þegar fjárfestingaráform voru greind með sama hætti þá voru hins vegar tveir landshlutar líklegri en höfuðborgarsvæðið til að ráðast í þær. Vesturland var annar af þeim eða nærri því 27% líklegri en fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu til að ráðast í fjárfestingar. Fjárfestingaráform fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu dógust saman um 27% á milli kannanna 2022 og 2025.