Auglýst eftir atriðum fyrir barnamenningarhátíð í haust

Barnó er sameiginleg barnamenningarhátíð Vesturlands sem haldin verður næst í október á þessu ári. Þar fá börn og ungmenni að njóta, skapa og taka þátt í fjölbreyttu menningarlífi um allt Vesturland. Nú er lýst eftir spennandi atriðum, viðburðum og skapandi verkefnum fyrir börn og ungmenni á aldrinum 0–18 ára.

„Við hvetjum einstaklinga, listafólk, hópa, félagasamtök, skóla, stofnanir og aðra skapandi aðila til að senda inn hugmyndir, t.d. að atriðum, listsmiðjum og skapandi verkefnum, tónlist, dansi og sviðslistum eða bara öllu öðru sem gleður, kveikir forvitni og virkjar sköpun barna og ungmenna! Við vekjum athygli að verkefni sem stuðla að inngildingu og fjölbreytileika samfélagsins eru sérstaklega hvött til að sækja um,“ segir Sigursteinn Sigurðsson menningarfulltrúi. Hann segir að mikilvægt sé að viðburðir fari fram á Vesturlandi á tímabilinu 1.–31. október 2026 og fjárstuðningur getur verið í boði fyrir valin verkefni.

Öll innsend atriði og verkefni verða tekin til skoðunar af stýrihópi Barnó sem sér um val á dagskrá hátíðarinnar. Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst. Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við Sigurstein verkefnastjóra Barnó hjá SSV: sigursteinn@ssv.is

Sjá nánari upplýsingar í Skessuhorni vikunnar á bls. 23 þar sem finna má QR kóða fyrir Barnó.