Fréttir

true

Pálmi Þór heldur áfram að þjálfa Skallagrím

Körfuknattleiksdeild Skallagríms í Borgarnesi hefur gert þriggja ára samning við Pálma Þór Sævarsson um þjálfun meistaraflokks. „Pálmi hefur mikið komið að starfi körfuknattleiksdeildarinnar, fyrst sem leikmaður frá unga aldri og þar til hann setti skóna á hilluna árið 2008. Eftir það fór Pálmi að þjálfa, ásamt stjórnarstörfum og að vera einn helsti stuðningsmaður deildarinnar. Hann…Lesa meira

true

Brautskráning frá Fjölbrautaskóla Vesturlands

Í gær voru 74 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. 39 nemendur luku stúdentsprófi af þremur brautum, átta luku burtfararprófi úr rafvirkjun, fjórir úr vélvirkjun, tólf luku prófi af sjúkraliðabraut, einn lauk námi á framhaldsskólabraut og tveir útskrifuðust af starfsbraut. Sjö nemendur luku viðbótarnámi til stúdentsprófs eftir að hafa lokið iðngrein og fjórir nemendur…Lesa meira

true

Andlát – Þorvaldur Pálmason

Þorvaldur Pálmason fyrrverandi grunnskólakennari í Borgarfirði og briddsspilari er látinn 78 ára að aldri. „Elskulegur Þorvaldur okkar lést í morgun á hjúkrunarheimilinu í Urðarhvarfi. Hann fékk friðsæla för á betri stað, saddur lífdaga. Við söknum hans sárt en erum þakklát fyrir að hafa fengið að hafa þennan baráttujaxl og besta pabba í heimi hjá okkur…Lesa meira

true

Höfðu sigur í annars jöfnum leik

Skagamenn mættu lærisveinum Jóhannesar Karls Guðjónssonar í FH á Kaplakrika í gærkvöldi þegar níunda umferð Bestu deildarinnar hófst. FH-ingar hafa átt erfitt leiktímabil og sátu í næstneðsta sæti deildarinnar fyrir leikinn. Heilt yfir var leikurinn mjög jafn og hefði hæglega getað endað með markalausu jafntefli. Skagamenn höfðu þó á endanum heppnina með sér þegar Ómar…Lesa meira

true

Hjalti Þór tekur við þjálfun ÍA í körfunni

Körfuknattleiksfélag ÍA hefur gengið frá samningi við Hjalta Þór Vilhjálmsson um þjálfun meistaraflokk karla. „Hjalti er reynslumikill þjálfari sem hefur til að mynda þjálfað Álftanes, Keflavík, Val og KR og er ráðning hans stórt skref fyrir starf félagsins,“ segir í tilkynningu frá félaginu. „Með ráðningu Hjalta stefnir ÍA að því að efla enn frekar metnaðarfullt…Lesa meira

true

Gísli Einarsson handhafi Landstólpans 2026

Ársfundur Byggðastofnunar var haldinn á Kirkjubæjarklaustri í gær. Meðal fastra liða þar var afhending verðlauna sem nefnast Landstólpinn. Þau eru veitt einstaklingum, hópum eða verkefnum sem hafa haft jákvæð áhrif á byggðaþróun, styrkt samfélag sitt og sýnt frumleika og hugrekki í verki. Viðkomandi hafa vakið jákvæða athygli á landsbyggðinni með verkefni, starfsemi, umfjöllun á opinberum…Lesa meira

true

Skagamenn mæta Hafnfirðingum í kvöld

Meistaraflokkur karla hjá ÍA mætir Fimleikafélagi Hafnarfjarðar, FH, í Kaplakrika klukkan 19:15 í kvöld í Bestu deildar leik. Þetta verður í fyrsta skipti sem Böðvar Böðvarsson í ÍA mætir í Kaplakrika sem leikmaður gestaliðs, en hann yfirgaf FH fyrir leiktíðina. Fyrir leikinn er FH aðeins með tvö stig í deildinni, situr í næstneðsta sæti með…Lesa meira

true

Kosið verður í þjóðaratkvæðagreiðslu á höfuðdaginn

Alþingi samþykkti síðdegis í gær þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu þess efnis að 29. ágúst næstkomandi verði greidd atkvæði um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þingmenn meirihlutans á Alþingi greiddu atkvæði með tillögunni, þingmenn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sátu hjá og þingmenn Miðflokks greiddu atkvæði gegn henni. Svarmöguleikar verða einfaldlega „Já“ eða „Nei“.Lesa meira

true

Síðasta næturlokunin afstaðin í Hvalfjarðargöngum

Eftir síðustu nótt er hætt næturlokunum í Hvalfjarðargöngum sem voru óhjákvæmilegar vegna endurnýjunar ljósabúnaðar. Lokað hefur verið í göngin fimm nætur í viku frá klukkan 21:30-06:00 á tímabilinu frá 7. apríl sl. Að sögn Sigríðar Ingu Sigurðardóttur í samskiptadeild Vegagerðarinnar tekur nú við fínstilling ljósabúnaðar í göngunum, en sú vinna mun engin áhrif hafa á…Lesa meira

true

Læknisvottorðs vegna ökuskírteina ekki lengur krafist við 65 ára aldur

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur gert breytingar á reglugerð um ökuskírteini. Veigamesta breytingin felur í sér í að læknisvottorðs verður framvegis ekki krafist sjálfkrafa sökum aldurs fyrr en umsækjandi hefur náð 75 ára aldri, í stað 65 ára aldurs áður. Þessi breyting á reglugerðinni var unnin í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið. Markmiðið er að einfalda umsóknarferlið og…Lesa meira