Andlát – Þorvaldur Pálmason

Þorvaldur Pálmason fyrrverandi grunnskólakennari í Borgarfirði og briddsspari er látinn 78 ára að aldri. „Elskulegur Þorvaldur okkar lést í morgun á hjúkrunarheimilinu í Urðarhvarfi. Hann fékk friðsæla för á betri stað, saddur lífdaga. Við söknum hans sárt en erum þakklát fyrir að hafa fengið að hafa þennan baráttujaxl og besta pabba í heimi hjá okkur svona lengi.“ skrifar dóttir hans Anney Þórunn.

Á meðfygjandi mynd er Þorvaldur að spila við Sveinbjörn Eyjólfsson á Vesturlandsmóti í sveitakeppni á Akranesi fyrir rúmu ári. Mótherjarnir eru Strandamenn.