Ólafur H. Knútsson blaðamaður hefði að óbreyttu þurft að framvísa læknisvottorði á næsta ári til að fá endurnýjun ökuskírteinis.

Læknisvottorðs vegna ökuskírteina ekki lengur krafist við 65 ára aldur

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur gert breytingar á reglugerð um ökuskírteini. Veigamesta breytingin felur í sér í að læknisvottorðs verður framvegis ekki krafist sjálfkrafa sökum aldurs fyrr en umsækjandi hefur náð 75 ára aldri, í stað 65 ára aldurs áður.