
Svipmynd úr leiknum. Ljósm. fotbolti.net
Höfðu sigur í annars jöfnum leik
Skagamenn mættu lærisveinum Jóhannesar Karls Guðjónssonar í FH á Kaplakrika í gærkvöldi þegar níunda umferð Bestu deildarinnar hófst. FH-ingar hafa átt erfitt leiktímabil og sátu í næstneðsta sæti deildarinnar fyrir leikinn. Heilt yfir var leikurinn mjög jafn og hefði hæglega getað endað með markalausu jafntefli. Skagamenn höfðu þó á endanum heppnina með sér þegar Ómar Björn Stefánsson náði að skora mark á 76. mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki og Skagamenn með 12 stig og í þægilegri stöðu um miðja deild.