Pálmi Þór við stjórnvölinn. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

Pálmi Þór heldur áfram að þjálfa Skallagrím

Körfuknattleiksdeild Skallagríms í Borgarnesi hefur gert þriggja ára samning við Pálma Þór Sævarsson um þjálfun meistaraflokks. „Pálmi hefur mikið komið að starfi körfuknattleiksdeildarinnar, fyrst sem leikmaður frá unga aldri og þar til hann setti skóna á hilluna árið 2008. Eftir það fór Pálmi að þjálfa, ásamt stjórnarstörfum og að vera einn helsti stuðningsmaður deildarinnar. Hann hefur áður stýrt meistaraflokki karla árin 2010 til 2014 en á tímabilinu kom hann liðinu upp í úrvalsdeild,“ segir í tilkynningu frá félaginu.