Unnið var við endurnýjun ljósabúnaðar frá 7. apríl til 28. maí. Ljósm. Vegagerðin

Síðasta næturlokunin afstaðin í Hvalfjarðargöngum

Eftir síðustu nótt er hætt næturlokunum í Hvalfjarðargöngum sem voru óhjákvæmilegar vegna endurnýjunar ljósabúnaðar. Lokað hefur verið í göngin fimm nætur í viku frá klukkan 21:30-06:00 á tímabilinu frá 7. apríl sl. Að sögn Sigríðar Ingu Sigurðardóttur í samskiptadeild Vegagerðarinnar tekur nú við fínstilling ljósabúnaðar í göngunum, en sú vinna mun engin áhrif hafa á umferð. Led lýsingin sem komin er upp í göngunum er þannig að hægt er að stýra birtustigi inni í þeim eftir birtu úti. Ef mjög bjart er úti er lýsingin aukin til að ökumenn finni síður fyrir því þegar ekið er inn í gangamunnana.

Sigríður Inga segir að verkefni hafi gengið vel og staðist fullkomlega áætlun um verktíma. Hún vill koma á framfæri kæru þakklæti til ökumanna og vegfarenda fyrir sýnda tillitssemi á meðan á framkvæmdunum stóð. Þá segir hún gott að ná að ljúka framkvæmdum áður en sumarumferðin eykst til muna á næstu vikum.