Skagamenn mæta Hafnfirðingum í kvöld

Meistaraflokkur karla hjá ÍA mætir Fimleikafélagi Hafnarfjarðar, FH, í Kaplakrika klukkan 19:15 í kvöld í Bestu deildar leik. Þetta verður í fyrsta skipti sem Böðvar Böðvarsson í ÍA mætir í Kaplakrika sem leikmaður gestaliðs, en hann yfirgaf FH fyrir leiktíðina. Fyrir leikinn er FH aðeins með tvö stig í deildinni, situr í næstneðsta sæti með tvö stig, en Skagamenn með níu stig í áttunda sæti.

Þessa skemmtilegu mynd af hinum tvítuga Hauki Andra Haraldssyni tók og vann Jón Gautur Hannesson ljósmyndari.