
Birkir Guðjónsson formaður Körfuknattleiksfélags ÍA og Hjalti Þór Vilhjálmsson þjálfari. Ljósm. ÍA.
Hjalti Þór tekur við þjálfun ÍA í körfunni
Körfuknattleiksfélag ÍA hefur gengið frá samningi við Hjalta Þór Vilhjálmsson um þjálfun meistaraflokk karla. „Hjalti er reynslumikill þjálfari sem hefur til að mynda þjálfað Álftanes, Keflavík, Val og KR og er ráðning hans stórt skref fyrir starf félagsins,“ segir í tilkynningu frá félaginu.