
Gísli Einarsson handhafi Landstólpans 2026
Ársfundur Byggðastofnunar var haldinn á Kirkjubæjarklaustri í gær. Meðal fastra liða þar var afhending verðlauna sem nefnast Landstólpinn. Þau eru veitt einstaklingum, hópum eða verkefnum sem hafa haft jákvæð áhrif á byggðaþróun, styrkt samfélag sitt og sýnt frumleika og hugrekki í verki. Viðkomandi hafa vakið jákvæða athygli á landsbyggðinni með verkefni, starfsemi, umfjöllun á opinberum vettvangi eða með öðrum hætti. Með viðurkenningunni fylgir listaverk og ein milljón króna í verðlaunafé. Að þessu sinni hlaut hinn fjölhæfi Gísli Einarsson frá Lundi; dagskrár- og fréttamaður, skemmtikraftur og fararstjóri verðlaunin. Gísli kom m.a. að stofnun Skessuhorns fyrir ríflega 28 árum síðan. Þetta er í annað skipti á 15 árum sem Landstólpinn fer á Vesturland. Á síðasta ári hlaut verðlaunin Kári Viðarsson frumkvöðull á Hellissandi.
Í umsögn á verðlaunaskjali til Gísla stendur: „Gísli hefur verið drifkraftur í að efla sitt samfélag hvort sem um er að ræða nærsamfélagið, eða allt landið um langa hríð og er ferill hans í senn litríkur og fjölbreyttur. Hann hefur sannarlega stuðlað að jákvæðri og sterkri ímynd landsbyggðarinnar með því að vekja athygli á kröftugu lífi á landsbyggðinni með umfjöllun sinni.“
Gísli kveðst aðspurður vera afar stoltur af þessari viðurkenningu. „Ég var tilnefndur fyrir allskonar; fréttamennsku og dagskrárgerð á landsbyggðinni, fararstjórn, uppistandssýningar á Söguloftinu í Borgarnesi, aðkomu að allskonar skemmtunum um allt land og sitthvað fleira. Með öðrum orðum var ég að fá verðlaun fyrir flest það sem mér þykir skemmtilegt að gera,“ sagði Gísli. „En hvað sem ég hef gert til þess að verðskuldaða þessa viðurkenningu þá hef ég ekki gert það einn. Ég þakka samstarfsfólki mínu í hinum fjölbreyttustu verkefnum og enn frekar fjölskyldu minni sem hefur stutt mig í öllu og tekið beinan þátt í ýmsu,“ sagði hann. Guðrún Hulda Pálmadóttir eiginkona Gísla og kletturinn í lífi hans var með honum á Klaustri þegar Landstólpinn var afhentur.