Brautskráning frá Fjölbrautaskóla Vesturlands

Í gær voru 74 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. 39 nemendur luku stúdentsprófi af þremur brautum, átta luku burtfararprófi úr rafvirkjun, fjórir úr vélvirkjun, tólf luku prófi af sjúkraliðabraut, einn lauk námi á framhaldsskólabraut og tveir útskrifuðust af starfsbraut. Sjö nemendur luku viðbótarnámi til stúdentsprófs eftir að hafa lokið iðngrein og fjórir nemendur luku viðbótarnámi til stúdentspróf samhliða námi iðngreina eða sjúkraliðanámi.

Brautskráning frá Fjölbrautaskóla Vesturlands - Skessuhorn