Fréttir

true

Nýr golfvöllur tekinn í notkun í Rifi

Golfvöllurinn í Rifi var formlega opnaður eftir átta ára metnaðarfulla uppbyggingu síðastliðinn föstudag. Með opnun vallarins hefur golfíþróttin á Snæfellsnesi fengið glæsilega viðbót á velli þar sem náttúra, landslag og golf sameinast á einstakan hátt. Rifsvöllur er níu holu völlur staðsettur í stórbrotnu umhverfi þar sem kylfingar njóta víðáttumikils útsýnis í allar áttir. Jón Bjarki…Lesa meira

true

Lenti í slæmum holum og utan vegar

Strandarvegur um Skógarströnd er víða allslæmur um þessar mundir. Nokkrar slæmar holur í röð geta valdið því að ökumenn missi stjórn á bílum sínum sé ekki þess varlegar farið. Jeppinn á meðfylgjandi mynd lenti utan vegar í gær á milli Emmubergs og Leitis. Ökumaður og farþegar sluppu þó með skrekkinn því bíllinn hélst á hjólunum,…Lesa meira

true

Gróðureldur í Borgarnesi

Undir kvöld í gær kom upp gróðureldur í klettasvæðinu suðaustan við gömlu Hlíðartúnshúsin í Borgarnesi. Grunur leikur á að einhverjir hafi verið að fikta með eld ofan við fjöruna. Lögregla og slökkvilið voru kölluð til og tók ríflega hálftíma að slökkva eldinn, sem náði yfir um 400 fermetra svæði. Meðfylgjandi mynd tók Sigurjón Guðmundsson. Vert…Lesa meira

true

Kólnar eftir miðja viku einkum fyrir norðan

Veðurfræðingar benda á að kólnað gæti verulega norðan heiða eftir miðja þessa viku. „Á fimmtudag snýst væntanlega í norðaustlæga átt og kólnar talsvert á norðanverðu landinu með slyddu eða jafnvel snjókomu. Nokkur óvissa er enn um hversu mikillar úrkomu er að vænta. Á sama tíma er spáð rigningu sunnan til og mun mildara veðri. Þeim…Lesa meira

true

Laxinn er að mæta í árnar

„Við vorum að veiða á Seleyrinni og sáum allavega fjóra laxa stökkva. Þeir voru flottir. Ég sá líka laxa í Hvítánni,“ sagði veiðimaður sem var á ferðinni við Seleyrina sunnan við Borgarfjarðarbrúna um helgina. Laxinn er því að ganga í árnar þessa dagana þótt enginn geti fyrirfram spáð hvernig veiðisumarið verður. „Það verður erfitt að…Lesa meira

true

Hollvinasamtök HVE afhentu nýtt augnskoðunartæki í Ólafsvík

Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands hafa tekið við myndarlegum framlögum til söfnunar samtakanna fyrir nýjum augnlampa (raufarlampa) fyrir heilsugæsluna í Ólafsvík og Holter hjartasíritum fyrir starfssvæði HVE. Hjónin Hjálmar Kristjánsson og Lydía Rafnsdóttir færðu söfnuninni nýverið höfðinglegt framlag að fjárhæð tvær milljónir króna og sveitarfélagið Snæfellsbær lagði einnig til 300 þúsund krónur til verkefnisins. Af þessu tilefni…Lesa meira

true

Minnt er á næturlokanir í Hvalfjarðargöngum

Næturlokanir verða næstu nætur í Hvalfjarðargöngum, en þau hafa frá því snemma í apríl verið lokuð frá klukkan 21:30 til 6 að morgni fimm daga vikunnar. Unnið er að endurnýjun ljósabúnaðar. Viðbúið er að margir verði á faraldsfæti í kvöld og annað kvöld, enda er Hvítasunnuhelgin með stærri ferðahelgum ársins. Fyrir þá sem ekki ná…Lesa meira

true

Brautskráning frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Nítján nemendur útskrifuðust frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði við hátíðlega athöfn sl. föstudag. Þetta var 42. útskrift skólans frá stofnun hans árið 2004 og hafa alls 640 nemendur lokið námi frá skólanum á þeim tíma. Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari brautskráði nemendur. Meðal þeirra var Eyrún Lilja Einarsdóttir sem hlaut hæstu einkunn útskriftarnema. Á myndinni má sjá…Lesa meira

true

42 bátar bundnir við bryggju um helgina

Höfnin á Arnarstapa nýtur miklar vinsælda. Bæði er höfnin og umhverfi hennar vinsæll viðkomustaður ferðafólks, en ekki síður eru það smábátasjómenn sem kjósa að gera þaðan út. Meðan á strandveiðitímabilinu stendur hafa allt upp í 50 bátar landað í þessari litlu en fallegu höfn. Skammt undan eru fengsæl fiskimið og stórbrotið útsýni. Þá er algengt…Lesa meira

true

Samkomulag í höfn um myndun nýs meirihluta á Akranesi

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar og frjálsra náðu í kvöld samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar. Mun það vera í fyrsta sinn sem flokkarnir tveir vinna saman í 84 ára sögu sveitarfélagsins. „Viðræður flokkanna hafa gengið vel og einkennst af trausti, málefnalegri nálgun og skýrum samhljómi í stefnum þeirra fyrir komandi kjörtímabil. Mikil eftirvænting…Lesa meira