
Þétt raðað í höfninni á Arnarstapa. Ljósm. af
42 bátar bundnir við bryggju um helgina
Höfnin á Arnarstapa nýtur miklar vinsælda. Bæði er höfnin og umhverfi hennar vinsæll viðkomustaður ferðafólks, en ekki síður eru það smábátasjómenn sem kjósa að gera þaðan út. Meðan á strandveiðitímabilinu stendur hafa allt upp í 50 bátar landað í þessari litlu en fallegu höfn. Skammt undan eru fengsæl fiskimið og stórbrotið útsýni. Þá er algengt að allt annað veðurfar sé á þeim miðum en á Breiðafirðinum, norðan við Snæfellsnes.