
Kólnar eftir miðja viku einkum fyrir norðan
Veðurfræðingar benda á að kólnað gæti verulega norðan heiða eftir miðja þessa viku. „Á fimmtudag snýst væntanlega í norðaustlæga átt og kólnar talsvert á norðanverðu landinu með slyddu eða jafnvel snjókomu. Nokkur óvissa er enn um hversu mikillar úrkomu er að vænta. Á sama tíma er spáð rigningu sunnan til og mun mildara veðri. Þeim sem eiga eitthvað undir veðri norðan heiða er því ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám,“ segir í tilkynningu frá Veðurstofunni.