Unnið við endurnýjun lýsingar. Ljósm. Vegagerðin

Minnt er á næturlokanir í Hvalfjarðargöngum

Næturlokanir verða næstu nætur í Hvalfjarðargöngum, en þau hafa frá því snemma í apríl verið lokuð frá klukkan 21:30 til 6 að morgni fimm daga vikunnar. Unnið er að endurnýjun ljósabúnaðar. Viðbúið er að margir verði á faraldsfæti í kvöld og annað kvöld, enda er Hvítasunnuhelgin með stærri ferðahelgum ársins. Fyrir þá sem ekki ná í tæka tíð í göngin er hjáleið um Hvalfjarðarveg.