Samkomulagið handsalað á Breiðinni.

Samkomulag í höfn um myndun nýs meirihluta á Akranesi

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar og frjálsra náðu í kvöld samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar. Mun það vera í fyrsta sinn sem flokkarnir tveir vinna saman í 84 ára sögu sveitarfélagsins. „Viðræður flokkanna hafa gengið vel og einkennst af trausti, málefnalegri nálgun og skýrum samhljómi í stefnum þeirra fyrir komandi kjörtímabil. Mikil eftirvænting ríkir meðal fulltrúa flokkanna fyrir því að hefja störf og vinna að áframhaldandi uppbyggingu og framþróun samfélagsins á Akranesi með bæjarstjórn allri,“ segir í tilkynningu frá þeim Líf Lárusdóttur oddvita Sjálfstæðisflokks og Ragnar B Sæmundssyni oddvita Framóknar með frjálsum.

Meirihlutasamkomulagið liggur nú fyrir. Eini fyrirvarinn við samkomulagið er samþykki fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins og félagsfundar Framsóknar og frjálsra. Samkvæmt samkomulaginu verður Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs og Ragnar B. Sæmundsson forseti bæjarstjórnar. Nánar verður kynnt síðar um önnur embætti, verkaskiptingu innan meirihlutans og ráðningu bæjarstjóra. „Fulltrúar flokkanna þakka fyrir gott samtal og þann jákvæða anda sem ríkt hefur í viðræðunum og horfa björtum augum til komandi kjörtímabils.“