
Lenti í slæmum holum og utan vegar
Strandarvegur um Skógarströnd er víða allslæmur um þessar mundir. Nokkrar slæmar holur í röð geta valdið því að ökumenn missi stjórn á bílum sínum sé ekki þess varlegar farið. Jeppinn á meðfylgjandi mynd lenti utan vegar í gær á milli Emmubergs og Leitis. Ökumaður og farþegar sluppu þó með skrekkinn því bíllinn hélst á hjólunum, en er skemmdur.
