
Laxinn er mættur á Brotið í Norðurá og á Munaðarnessvæðið sömuleiðis. Það er alltaf fallegt við Laxfoss. Ljósm. María Gunnarsdóttir
Laxinn er að mæta í árnar
„Við vorum að veiða á Seleyrinni og sáum allavega fjóra laxa stökkva. Þeir voru flottir. Ég sá líka laxa í Hvítánni,“ sagði veiðimaður sem var á ferðinni við Seleyrina sunnan við Borgarfjarðarbrúna um helgina. Laxinn er því að ganga í árnar þessa dagana þótt enginn geti fyrirfram spáð hvernig veiðisumarið verður. „Það verður erfitt að treysta á tveggja ára laxinn þetta sumarið en það verður vonandi hægt að stóla á eins árs fiskinn,“ sagði leigutaki sem þekkir þetta vel og hefur lært fiskeldi erlendis.