Á myndinni eru m.a. starfsfólk heilsugæslunnar, forsvarsmenn HVE og hollvinasamtakanna ásamt fulltrúum styrktaraðila í söfnuninni. Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar, Hjálmar Kristjánsson og Lydía Rafnsdóttir eru fulltrúar gefenda í söfnunina. Sævar Freyr Þráinsson og Kristjana Hermannsdóttir í stjórn hollvinasamtaka HVE, Ástþór Vilmar Jóhannsson, Jóhanna Fjóla Jóhannsdóttir forstjóri HVE og Sigurður Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga hjá HVE. Einnig Birna Dröfn Birgisdóttir, Regína Ösp Ásgeirsdóttir, Svanfríður Kristjánsdóttir og Patryk Zolobow öll hjá heilsugæslunni í Ólafsvík. Ljósm. Skessuhorn/af

Hollvinasamtök HVE afhentu nýtt augnskoðunartæki í Ólafsvík

Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands hafa tekið við myndarlegum framlögum til söfnunar samtakanna fyrir nýjum augnlampa (raufarlampa) fyrir heilsugæsluna í Ólafsvík og Holter hjartasíritum fyrir starfssvæði HVE. Hjónin Hjálmar Kristjánsson og Lydía Rafnsdóttir færðu söfnuninni nýverið höfðinglegt framlag að fjárhæð tvær milljónir króna og sveitarfélagið Snæfellsbær lagði einnig til 300 þúsund krónur til verkefnisins. Af þessu tilefni var augnlampinn afhentur formlega á heilsugæslunni í Ólafsvík síðastliðinn föstudag að viðstöddum fulltrúum Hollvinasamtakanna, HVE og styrktaraðilum.

Sævar Freyr Þráinsson formaður hollvinasamtakanna segir í samtali við Skessuhorn að augnlampi (raufarlampi) sé nákvæmt greiningartæki sem notað er til að skoða fremri hluta augans, meðal annars hornhimnu, lithimnu og augastein. Með slíkum búnaði er hægt að greina augnsjúkdóma og breytingar á auganu fyrr og með meiri nákvæmni, sem bætir þjónustu við sjúklinga á svæðinu. „Við erum einstaklega þakklát fyrir þann mikla stuðning sem samfélagið sýnir Hollvinasamtökunum og HVE. Þessi framlög skipta verulegu máli fyrir heilbrigðisþjónustu á Vesturlandi og gera okkur kleift að styðja við mikilvægan tækjabúnað sem nýtist bæði starfsfólki og sjúklingum um ókomin ár,“ segir Sævar Freyr.

Á aðalfundi Hollvinasamtakanna í mars síðastliðnum var samþykkt að næsta söfnunarverkefni samtakanna yrði kaup á augnlampa fyrir Ólafsvík og fjórum Holter hjartasíritum sem nýtast munu um allt starfssvæði HVE.

„Hollvinasamtökin hvetja áfram fyrirtæki, sveitarfélög og einstaklinga til að taka þátt í verkefninu og styðja við áframhaldandi uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á Vesturlandi en hægt er að gerast félagsmaður og greiða árgjald kr. 3.000 með því að fara facebook síðu hollvinasamtakana sem ber nafnið „Vesturlandsvaktin.“.“