
Nýr golfvöllur tekinn í notkun í Rifi
Golfvöllurinn í Rifi var formlega opnaður eftir átta ára metnaðarfulla uppbyggingu síðastliðinn föstudag. Með opnun vallarins hefur golfíþróttin á Snæfellsnesi fengið glæsilega viðbót á velli þar sem náttúra, landslag og golf sameinast á einstakan hátt. Rifsvöllur er níu holu völlur staðsettur í stórbrotnu umhverfi þar sem kylfingar njóta víðáttumikils útsýnis í allar áttir. Jón Bjarki Jónatansson formaður Golfklúbbsins Jökuls í Ólafsvík segir í samtali við Skessuhorn að völlurinn liggi í fjölbreyttu landslagi sem einkennist af náttúrulegum hæðum og opnu útsýni til sjávar og fjalla. Það gerir leikupplifunina bæði skemmtilega og eftirminnilega. Mikil vinna hefur verið lögð í framkvæmdina undanfarin ár og hefur verkefnið verið drifið áfram af metnaði og sjálfboðavinnu félagsmanna.