Fréttir

true

Breytingar í forystu Grundarfjarðar og Birkir Jón verður bæjarstjóri

B listi Framsóknar og félagshyggjufólks í Grundarfirði þakkar kjósendum fyrir þátttökuna og traustið í sveitarstjórnarkosningunum fyrr í mánuðinum. „Við þökkum fráfarandi bæjarstjórn og bæjarstjóra, Björgu Ágústsdóttur, fyrir þeirra framlag til Grundarfjarðarbæjar,“ segir í tilkynningu. „Framundan eru spennandi tímar í Grundarfirði þar sem við munum leggja áherslu á áframhaldandi uppbyggingu, húsnæðismál, opið samtal við íbúa, bætta…Lesa meira

true

Bauð til fundar um loftgæði við Hvalfjörð

Í vikunni fyrir kosningar var haldinn kynningarfundur um loftgæði og lýðheilsu við Hvalfjörð, í anddyri Tónlistarskólans á Akranesi. Ragnheiður Þorgrímsdóttir á Kúludalsá skipulagði og boðaði til fundarins en Stefán Pálsson var fundarstjóri. Flutt voru þrjú framsöguerindi en auk þess var fulltrúum framboða á Akranesi og Hvalfjarðarsveit boðið að segja nokkur orð. Erindi frummælenda fjölluðu um…Lesa meira

true

Nemendur kynntu misserisverkefni í Hjálmakletti

Ein af sérstöðum Háskólans á Bifröst frá upphafi hefur verið að nemendur vinna misserisverkefni í hópum. Verkefnin þarf síðan að verja og kynna. Misserisverkefni taka mið af kennsluaðferð sem kallast lærdómsþróun og miðar að því að auka hæfni nemenda fyrir vinnumarkað að námi loknu. Misserisverkefnadagur var í Hjálmakletti í Borgarnesi í gær þar sem um…Lesa meira

true

Kaflaskiptur leikur Skagamanna

ÍBV sótti ÍA heim í gærkvöldi í byrjunarleik áttundu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta. Tölfræðin var með Skagamönnum fyrir leikinn því ÍBV sat á botninum en ÍA var um miðbik deild með átta stig. Leikurinn fór vel af stað fyrir heimamenn sem náðu að komast tveimur mörkum yfir áður en gestirnir svöruðu fyrir sig.…Lesa meira

true

Nýtt meirihlutasamstarf í Borgarbyggð

Í gær handsöluðu oddvitar Sjálfstæðisflokks og Borgarbyggðarlista meirihlutasamstarf fyrir næsta kjörtímabil í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Á myndinni eru oddvitarnir Jovana Pavlović og Sigurður Guðmundsson. Sjálfstæðisflokkurinn jók fylgi sitt í þrjá sveitarstjórnarfulltrúa í kosningunum 16. maí, hafði tvo á síðasta kjörtímabili og sat í minnihluta. Borgarbyggðarlistinn bauð fram í fyrsta skipti og fékk tvo…Lesa meira

true

Aðgerðaáætlun til 2030 um sjúkraflutninga

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur samþykkt aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana til ársins 2030. Áætlunin miðar að því að efla gæði og öryggi bráðaþjónustu um allt land. Aðgerðaáætlunina vann vinnuhópur, skipaður breiðum hópi hagaðila og fagfólki, sem tengist málefnum sjúkraflutninga um allt land. Í starfi sínu studdist hópurinn við stefnu um bráðaþjónustu og…Lesa meira

true

Endurnýjun Bröttugötu hefst í júní

Borgarbyggð, Veitur og Rarik hefja í júní framkvæmdir í Bröttugötu í Borgarnesi. Þar verða lagnir hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og rafveitu endurnýjaðar ásamt öllu yfirborði á götu og gangstéttum. Vegna kostnaðar var horfið frá því að hafa snjóbræðslu í götunni. Áætlað er að vinna hefjist nú í júní eftir að skóla lýkur og unnið á milli…Lesa meira

true

Lengja opnunartíma í íþróttamiðstöðinni

Dalabyggð hefur ákveðið að fá og með 1. júní taki gildi sumaropnun í íþróttamiðstöðinni sem gildir til loka ágúst. Með nýjum opnunartíma er leitast við að koma til móts við óskir íbúa um aukið aðgengi um helgar. Sumaropnunartíminn er þannig að virka daga verður opið frá klukkan 7 til 21 en um helgar frá 10…Lesa meira

true

Útfösun 3G hefur dregið verulega úr fjarskiptasambandi

Sveitarstjórn Borgarbyggðar fjallaði á síðasta fundi sínum um áhrif lokana á 3G og 2G farsímakerfum sem var í vor. Eftir að lokað var fyrir þjónustuna hafa íbúar og aðrir vegfarendur um sveitarfélagið fundið fyrir verulegri skerðingu á fjarskiptasambandi, eins og fjallað hefur verið um í Skessuhorni. Í ályktun sem sveitarstjórn samþykkti segir: „Fjöldi íbúa og…Lesa meira

true

Árgangamót hjá leikskólabörnum á Akranesi – myndasyrpa

Veðrið leikur við börn og starfsfólk leikskólanna á Akranesi í dag, en með löngum fyrirvara er skipulagður útidagur að vori. Á Aggapalli kom árgangur 2022 af öllum leikskólunum bæjarins saman en í Garðalundi börn sem fædd eru 2021. Blaðamaður Skessuhorns leit við í Garðalundi í logni og glampandi sól í morgun. Börnin undu sér vel…Lesa meira