Svipmynd frá nýju sundlauginni þaðan sem útsýnið er stórfenglegt út á Hvammsfjörðinn. Ljósm. bþ

Lengja opnunartíma í íþróttamiðstöðinni

Dalabyggð hefur ákveðið að fá og með 1. júní taki gildi sumaropnun í íþróttamiðstöðinni sem gildir til loka ágúst. Með nýjum opnunartíma er leitast við að koma til móts við óskir íbúa um aukið aðgengi um helgar. Sumaropnunartíminn er þannig að virka daga verður opið frá klukkan 7 til 21 en um helgar frá 10 til 18. Þetta á við um bæði sal og sundlaugarsvæðið. „Viðtökur við íþróttamiðstöðinni hafa verið afar góðar og markmið breytinganna er að efla þjónustu og bæta aðgengi enn frekar yfir sumartímann, í takti við aukna notkun og umferð á svæðinu. Verið hjartanlega velkomin í íþróttamiðstöðina í sumar – hlökkum til að sjá ykkur,“ segir í tilkynningu.