
Þeir Rúnar Helgason og Teitur Tómas Þorláksson fjölluðu um verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands í verkefni sínu og báru saman við Norðurlöndin. Niðurstaða þeirra var afgerandi þess efnis að 2,5% verðbólgumarkmið er of lágt og bitnar á heimilum og fyrirtækjum. Inni í vísitölunni er húsnæðisliður sem er ekki á Norðurlöndunum. „Verðbólgumarkmiðið sem slíkt er þannig vandamál íslensks hagkerfis. Verðbólga hér á landi er yfir markmiði í 67% mælinga, langt umfram Norðurlönd (21-38%). Þetta er því ónothæft markmið sem leiðir til hærri stýrivaxta til langs tíma. Fólki og fyrirtækjum til ama, en fjármagnseigendum til gagns,“ segir í niðurstöðum þeirra. Ljósm. mm
Nemendur kynntu misserisverkefni í Hjálmakletti
Ein af sérstöðum Háskólans á Bifröst frá upphafi hefur verið að nemendur vinna misserisverkefni í hópum. Verkefnin þarf síðan að verja og kynna. Misserisverkefni taka mið af kennsluaðferð sem kallast lærdómsþróun og miðar að því að auka hæfni nemenda fyrir vinnumarkað að námi loknu. Misserisverkefnadagur var í Hjálmakletti í Borgarnesi í gær þar sem um 200 nemendur kynntu verkefni sín og svöruðu spurningum kennara sem gengu á milli hópa. Kynningartexti um verkefnin var hengdur upp á vegg og nemendur svöruðu spurningum. Blaðamaður Skessuhorns leit við og smellti nokkrum myndum.